27.01.2012 15:09

Þorrabyrjun

Nú er þorri genginn í garð, og við sjáum hann í garðinum okkar.
 

Hér á Lækjarbrekku höfum við til siðs að halda upp á bóndadaginn
og bjóða þannig Þorra velkomin.
           
Við gerðum okkur víkingahjálma og borðuðum hefðbundinn þorramat


Marteinn hélt fyrir okkur fyrirlestur í máli og myndum

um veiðar og verkun á hákarli.
Það fengu líka allir að smakka.



23.01.2012 12:56

Afmælisbarn dagsins

Afmælisbarn.

Hún Þórey Dögg á afmæli í dag og er 6 ára.
Hún fékk þessa fínu kórónu og svo sungum við fyrir hana afmælissöngin.

Innilega til hamingju með afmælið
Þórey okkar.

16.01.2012 15:39

Afmælisbarn dagsins

Hún Eva Lara varð 2ja ára þann 9.janúar síðastliðin.
Í dag sungum við fyrir hana og
hún fékk fína kórónu.


Innilega til hamingju með afmælið Eva okkar.

06.01.2012 14:49

Afmælisbarn dagsins

Afmælisbarn dagsins
Hann Stefán Dam verður 6ára þann 7.janúar.
Í dag fékk hann kórónu og við sungum fyrir hann.


Til hamingju með afmælið Stefán okkar.

03.01.2012 14:00

Afmælisdama

Starfsfólk Leikskólans Lækjarbrekkur óskar öllum nemendum
og fjölskyldum þeirra gleðilegs árs og þakkar liðnu árin.

Hún Ólöf Katrín varð 6 ára í gær 2. janúar
við sungum fyrir hana afmælissöng í dag
og hún fékk fína kórónu.


Innilega til hamingju með 6 ára afmælið Ólöf okkar.emoticon

30.12.2011 11:22

Afmælisprinsessa

Hún Marín Arnars er 2 ára í dag. Við skreyttum handa henni kórónu og sungum fyrir hana afmælissönginn. Til hamingju með afmælið elsku Marín emoticon


19.12.2011 13:02

Afmælisbarn dagsins

Hann Stefán Þór átti afmæli í gær
18 desember og varð 3ja ára.

Hann fékk fína kórónu og við
sungum fyrir hann afmælissöngin.
Innilega til hamingju með afmælið Stefán Þór

16.12.2011 13:33

Jólaball

Í dag var jólaballið á Lækjarbrekku.
Að venju var dansað í kringum jólatréð.

Þegar söngur barnanna hljómaði um viðan völl
tóku jólasveinarnir í Borgunum strax eftir því og
fóru strax að gá hvað væri á seiði.

Þessar sívinsælu gleðigjafar komu síðan í heimsókn til okkar
og allir fengu jólapakka frá þessum heiðurskörlum.


Það var mikið líf og fjör á jólaballinu.

16.12.2011 13:19

Vikan 12-16 des.

Það er búið að vera mikið um að vera hérna hjá okkur
þessa síðustu viku.
Á Mánudaginn var bíódagur hjá okkur.


Á Þriðjudaginn fórum við á Cafe Riis og fengum piparkökur og kakó
Við sungum líka fyrir pabba okkar og mömmur.


Á miðvikudag komu nemendur úr 4,5 og 6 bekk og lásu fyrir okkur sögur


Það er búið að vera mikið fjör og gleði þessa viku.

16.12.2011 13:15

jólatré

Við eigum mjög fínt jólatré hérna á leikskólanum.

Lionsfólk gaf okkur þetta frábæra tré, og þeir
Siggi Marri og Snorri settu það upp fyrir okkur.
Takk kærlega fyrir þetta frábæra Jólatré.

13.12.2011 12:16

Jólahúsið 2011

Í dag fór 5 ára hópur í sinn árlega jólaljósa rúnt.
Snorri koma og keyrði okkur um alla Hólmavík og við
horfðum vel og vandlega á hvert og eitt hús.
Að loknu miklum umræðum ákvað 5ára hópur
að kjósa húsið Sólvang sem jólahúsið í ár.



5ára hópur óskar íbúum sólvangs til
hamingju með að eiga jólahús.

07.12.2011 14:39

Ótitlað

Eins og alltaf í desember verður heilmikil breyting
á starfinu hérna á Lækjarbrekku.
Á þriðjudag og miðvikudag vorum við að baka piparkökur
og að skreyta þær.


Svo fengu allir að taka kökurnar sínar heim
og gæða sér vonandi á þeim þar.

07.12.2011 14:35

Vetur konungur

Nú hefur vetur konungur tekið völdin
og það líkar krökkunum á Lækjarbrekku heldur betur vel.


Það  er alltaf stuð í snjónum

    Flettingar í dag: 50
    Gestir í dag: 17
    Flettingar í gær: 79
    Gestir í gær: 21
    Samtals flettingar: 173431
    Samtals gestir: 41724
    Tölur uppfærðar: 28.1.2012 12:59:01