Flokkur: Dvergakot

01.07.2010 12:06

Afmæli

Afmælisbarn dagsins er hann Sævar Eðvald. Hann er fimm ára í dag. Af því tilefni fékk hann afmæliskórónu og við sungum fyrir hann afmælissönginn.
Til hamingju með afmælið Sævar Eðvald emoticon

09.06.2010 12:16

Ormar

Undanfarið hafa nemendur Lækjarbrekku veitt ánamöðkunum í garðinum mikla athygli.
Í þarsíðustu viku söfnuðum við ánamöðkum í box og höfðum þá inni á Dvergakoti í nokkra daga, skoðuðum þá, gáfum þeim að borða og sáum til þess að það væri nógu rakt hjá þeim.
 
Ormaáhuginn er enn til staðar og sumir nemendur eyða töluverðum tíma útiverunnar í ormarannsóknir emoticon
  

18.05.2010 12:22

Sveitaferð

Í dag og í gær fóru nemendur Lækjarbrekku í heimsókn á Heydalsá til þeirra Siggu og Ragga.

  

Báðir hóparnir fengu að sjá lítil lömb koma í heiminn og var það mikil upplifun.
Fleiri myndir má sjá í albúmi emoticon
VIð þökkum kærlega fyrir okkur emoticon

08.10.2009 13:08

Foreldrafundur

Minnum á foreldrafundinn kl.20 í kvöld.

30.09.2009 13:22

Matseðill

Matseðill fyrir október er kominn inn á síðuna.emoticon

21.09.2009 13:18

Starfsdagur


Við viljum vekja athygli á því að það er starfsdagur hjá okkur á föstudaginn 25.sept og þá er leikskólinn lokaður.

01.09.2009 14:41

Viðbragðsáætlun



Samkvæmt 15.grein laga um almannavarnir, nr. 82/2008, ber ráðuneytum og undirstofnunum þeirra og sveitarfélögum og stofnunum á þeirra vegum að gera viðbragðsáætlanir til að takast á við afleiðingar neyðarástands.

Gerð hefur verið viðbragðsáætlun fyrir leikskólann Lækjarbrekku og er hún nú að gengileg á vef leikskólans
http://laekjarbrekka.is/files/

Foreldrum og forráðamönnum er bent á vefsíðurnar
www.almannavarnir.is og www.influensa.is til að fá upplýsingar um inflúensuna, svo sem helstu smitleiðir og hvernig megi draga úr smithættu.

28.08.2009 14:29

Rýr kartöfluuppskera í ár



Við tókum upp kartöflur í vikunni, uppskeran var frekar rýr emoticon

  



 
Katrín Ýr og Sunna Kristín
hafa bæst í barnahópinn í Lækjarbrekku.
Við bjóðum þær velkomnar í hópinnemoticon

27.08.2009 11:25

Tónlist í Dvergakoti



Í hópatíma í dag vorum við að spila á hljóðfæri. Trommurnar voru að sjálfsögðu lang....lang....skemmtilegastar. Við spiluðum líka á allskonar hristur, þríhorn og bjöllustafi.

 

27.07.2009 13:38

Dvergakot í gönguferð

Í hópatíma í dag fórum við í Dvergakotinu í skemmtilegan göngutúr. Við vorum að leika á túninu fyrir framan Kaffi Galdur og svo skoðuðum við bátana við bryggjuna.


Við erum tilbúin í gönguferðina.

 
Það var rosalega skemmtilegt að leika á túninu.

  • 1
Flettingar í dag: 189
Gestir í dag: 12
Flettingar í gær: 57
Gestir í gær: 16
Samtals flettingar: 183514
Samtals gestir: 43552
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 20:59:34